Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Hjólkoppaævintýri Runólfs Mergjaða

office partyFyrir nokkrum vikum var vinnustaðapartí, sem er svosem ekkert nýtt né frásagnarvert.  Hitt er annað mál að Runólfur Mergjaði bar mig innanborðs að samkomustaðnum.  „Best að geyma hann í bílskýlinu,“ hugsaði ég, „svo ekkert komi fyrir hann á meðan ég er í burtu.“  Þarna var ég náttúrulega að storka örlögunum, því bílskýlið er hálfopið þannig að þegar ég kom aftur að Runólfi, hafði öllum hjólkoppunum verið stolið af honum.  Segi og skrifa: öllum fjórum.  Það fannst mér ekki falleg sjón og ákvað að kippa því í liðinn án nokkurra vafninga.

118„Æ, hvað heitir hann aftur koppasalinn sem býr við Rauðavatn? “ spurði ég stúlkuna sem svaraði hjá 118.  Hún hafði ekki hugmynd um það.   Ég sem hélt að það væri hægt að spyrja þær um hvaðeina; uppskriftir, heimilisviðgerðir o.fl.  „Valdi koppasali“, sagði Kári tengdasonur Steina bróður og ég hringdi aftur í 118 til að fá símanúmerið hjá honum.  Auðvitað átti Valdi hjólkoppa, ekki í hundraðatali, heldur í þúsunda ef ekki tugþúsunda.  Hann átti ekki í neinum vandræðum með að finna fjögur stykki á hann Runólf Mergjaða.  Að vísu reyndust tveir þeirra vera of lausir til að hægt væri að treysta því að þeir færu ekki af í næstu beygju.  „Heyrðu vilt þú ekki bara fara og ná í aðra, ég bíð bara í bílnum á meðan, það er svo kalt og hált“, sagði ég. „Sumir keyra í burtu.“ „Ég lofa að keyra ekki í burtu á meðan.“ 

koppurJæja hann hvarf bak við hús og kom rétt strax með þrjá hjólkoppa, sem allir pössuðu eins og flís við rass.  Mig vantaði bara tvo til viðbótar við hina tvo sem höfðu smellpassað í fyrri tilrauninni, þannig að ég fékk þann þriðja með í kaupbæti. „Þú verður þá að auglýsa mig í staðinn.“  Ég er semsagt að efna það loforð núna.

 

koppur2Af hverju er ég að segja þessa sögu núna?  Jú, vegna þess að ég komst að því í dag að einhversstaðar úti í myrkrinu liggur hjólkoppur af Runólfi Mergjaða og sá sem ég fékk í kaupbæti, kom sér að lokum vel.


Tilviljun? Hver veit?

konurStundum er eins og eitthvað eitt gerist endurtekið sama daginn.  Leyfið mér að útskýra; í mínu lífi kemur fremur reglulega dagurinn sem ég kalla „hringjum í Guðrúnu dagurinn“.  Á þeim degi gerist það að allskonar fólk hringir í mig, allt frá góðum vinum upp í fólk sem ég þekki lítið sem ekkert, fólk sem ég er í reglulegu sambandi við eða sem ég heyri örsjaldan í.

 

konur2Í gær var „konudagurinn“ hjá mér, þó hann sé í dag, skv. almanakinu.  Það var ekki venjulegur konudagur, heldur „látum Guðrúnu hitta konurnar sem eru náskyldastar henni dagurinn“.  Mig rekur ekki minni til að svoleiðis dagur hafi komið áður, nema ef einhver hafi tekið sig til og haldið einhverskonar boð.  Ekkert slíkt boð var í gær, nei, nei, dagurinn byrjaði á því að við systurnar fórum í verslunarleiðangur fyrir hádegi. Afraksturinn: enginn.  Eftir hádegi var ég svo bara eitthvað að dingla mér hérna heima þegar Edda systurdóttir hringdi til að athuga hvort ég væri heima, þau Ási ætluðu að líta við, sem þau og gerðu.  Ægilega gaman að fá þau í heimsókn, Ási hefur t.d. aldrei kíkt við áður.  Við spjölluðum um ýmislegt yfir tebolla og snúðum á meðan Eldur, chihuahua hundurinn þeirra var í könnunarleiðangri um íbúðina.  Edda hefur ekki komið síðan ég átti afmæli s.l. vor.  Jæja, þegar þau fóru datt mér í hug að kíkja á handleggsbrotna móður mína í Keflavík og hringdi í hana til að athuga hvort bollurhana vantaði eitthvað.  „Bollur og rjóma“ var svarið.  Til að ná í vistirnar skrapp ég í Hagkaup og gekk beint í flasið á Völu bróðurdóttur, sem ég hef ekki séð síðan um jól.  Eftir að hafa spjallað smávegis, benti Vala mér á, að Soffía systir hennar væri að vinna í snyrtivörudeildinni, svo við færðum okkur þangað og spjölluðum enn meira.  Þegar upp var staðið hafði ég hitt þær konur sem eru náskyldastar mér í þremur ættliðum; mömmu, einustu systur mína og systkinadæturnar þrjár, allar sama daginn.  Sumt af „hittingnum“ var undirbúið, annað ekki.  Tilviljun?  Hver veit?

Gleðilegan konudag.


Ferðaáætlun

boston legalNú er ljóst að ferð mín til Washington verður „fyrir alvöru“.  Ég fékk farmiðann í hendur í gær.  Jamm.  Hann hljóðar upp á flug til Boston, (skipti þar um flugstöðvarbyggingu,) flug til Duelles í Washington, sex vikur líða, þá flug frá Baltimore og heim.  Lendi í Keflavík að morgni annars í páskum.

 

Biðtíminn í Boston er þrír tímar.  Það hlýtur að vera nægur tími til að fara í gegnum tollinn, ná í farangurinn, finna flugstöðvarbyggingu C en þaðan er flugið til Duelles-flugvallar í Washington, skrá sig í flugið og fá sér eitthvað í gogginn.

 

washingtonSem betur fer gengur „shuttle bus“ númer 11 milli bygginga B (þar sem ég lendi) og C á 8 – 12 mínútna fresti á tímanum frá kl. 4 eftir miðnætti til kl. 1 eftir miðnætti.  Stoppistöð er á „lower baggage claim“ í hverri flugstöðvarbyggingu.  Ég ætti að ná auðveldlega í svona „shuttle bus“ . 

 

Kannski þessar upplýsingar komi einhverjum lesandanum vel einhverntíma í framtíðinni.

 

Ekki meira í bili, Edda og Ási eru að hringja á dyrabjöllunni.


Menningin

teremMenningarklúbburinn gerði sér lítið fyrir í gær og fór í Salinn í Kópavogi til að hlusta á Terem-kvartettinn og Diddú.  Það var sko tíma vel verið.  Til útskýringar vitna ég hér í kynningu á kvartettinum sem ég fann á heimasíðu Salarins.  „Á efnisskrá kvartettsins er á þriðja hundrað tónverka, allt frá umskrifunum fyrir breytta hljóðfæraskipan til þversagnakenndra fantasía sem byggðar eru á þekktum stefjum eftir Bach, Mozart, Rossini, Bizet, Piazzolla, Rota, Rimsky-Korsakoff, Tchaikovsky og fleiri. En þótt hópurinn viði að sér tónlist úr ýmsum áttum breytist hún í meðhöndlun þeirra og talar til manns tærri, rússneskri röddu. Með þessum hætti verða þeir sem Terem-kvartettinn skipa meira en aðeins tónlistarmenn. Þeir færa fólki gleði, ást og eftirvæntingu um þau meistaraverk sem í vændum eru.“  Tónleikarnir verða endurteknir í kvöld og ef það er enn hægt að fá miða, þá mæli ég með því að þú lesandi góður krækir þér í einn.

 

Málinu reddað!

flugMálinu hefur verið reddað.  Þessi dásamlegi póstur barst rétt í þessu frá Olgu frænku:  Ég ætla bara að koma og sækja þig og svo verður þú bara nóttina hjá okkur og ég fer svo með þig niður á hótel á sunnudaginn. Líst þér ekki bara vel á það?  aðeins seinna kom þetta: „.......og svo kemur þú auðvitað með á Þorrablótið!!!!!!!  Það verður þorrablót hjá Íslendingafélaginu á meðan ég verð í Washington og mér er boðið!  Ekki nóg með það, ég get lent áhyggjulaus í borginni seint að kvöldi laugardags (kl. 22:33), þarf ekki að leita að leigubíl, hóteli eða einu eða neinu.  Verð bara sótt.  Ljómandi, svo ég noti orðið sem Steingerður kynntist að nýju í gærkvöldi.  Aldeilis ljómandi.

Runólfur Mergjaði

„Einkennilegt“ hef ég hugsað þegar ég gef stefnuljós til vinstri.  „Af hverju er slátturinn í stefnuljósinu miklu hraðari þegar ég þarf að taka vinstri beygju en þegar ég vil fara til hægri?“  Runólfur Mergjaði (Renault Megane) fór nefnilega á verkstæði fyrir nokkru og það var skipt um háspennukefli í honum blessuðum.  Lætin í vinstra stefnuljósinu hófust eftir það.  „Það hefur farið eitthvað úrskeiðis þegar gert var við bílinn.“ hugsaði ég.  „Gat nú verið.“  Á þessa leið voru hugsanir mínar í rúma viku, í hvert skipti sem ég beygði til vinstri. 

 

RunólfurÞað var ekki fyrr en ég skrapp í Birtíng og skilaði lánsbókum til Gurríar að mér hugkvæmdist að koma við hjá umboðinu og benda starfsfólkinu þar á að eitthvað hafi nú ekki farið eins og til var ætlast í lagfæringunni um daginn.  Eins og alkunna er, þá vinnur hún rétt hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum.  Ég dreif mig þangað og króaði góðlegan verkstæðismann af, dró hann út í bíl, svo hann gæti heyrt þessi ósköp með eigin eyrum og jafnframt það að um stóralvarlegt mál væri að ræða.

 

„Það er farin pera í stefnuljósinu vinstramegin að framan.  Hefur ekkert að gera með viðgerðina um daginn“ var úrskurðurinn.  Ok, það var semsagt ekki bíla-krabbamein eða eitthvað þaðan af verra sem gekk að blessuðum bílnum en mér leið samt eins og ég væri voða ljóshærð.

 

einsteinNB.  Í mínum huga getur það komið fyrir fólk með hinn aðskiljanlegasta háralit að vera ljóshærð(ur).   Sjálf er ég „brunette“.


Lífsspeki

esherStundum rekst ég á eitthvað sem mér finnst svo sniðugt og langar til að deila með fleirum t.d. þetta:

 

Það eru tveir dagar í hverri viku sem við þurfum ekki að hafa áhyggjur af, tveir dagar sem ættu að vera lausir við áhyggjur og kvíða.

Annar er gærdagurinn með öllum sínum mistökum, kvíða, göllum, glappaskotum og verkjum.  Gærdagurinn er liðinn og kemur aldrei aftur og við höfum ekki yfirráð yfir honum lengur.  Sama hversu hátt verð við erum ert tilbúin að greiða fyrir það.  Það er ekki hægt að bæta fyrir það sem gert var eða sagt.  Gærdagurinn er farinn. 

 

Hinn er morgundagurinn, með mögulegt andstreymi sitt, byrði, áheit, og vonda frammistöðu.  Morgundagurinn er líka utan yfirráðasvæðis okkar.  Á morgun kemur sólin upp, annað hvort með glæsibrag eða á bak við ský.  Hvort sem er, þá kemur hún upp. Þangað til eigum við ekkert í morgundeginum, hann er ófæddur ennþá.  Þá er einungis einn dagur eftir: dagurinn í dag.

 

blómHver sem er getur barist í eins dags bardaga.  Það er bara þegar við bætum við byrðum þessara tveggja óbærilegu eilífða; gærdagsins og morgundagsins, að við brotnum.  Það er ekki reynsla dagsins í dag sem gerir okkur brjáluð, það er samviskubit og biturð vegna þess sem gerðist í gær og kvíðinn fyrir því sem morgundagurinn ber í skauti sér.  Þar af leiðandi skulum við lifa þennan dag í dag til hins ýtrasta.


Listaverk

ritverkListar eru til ýmissa hluta nytsamlegir, ég tala nú ekki um þegar ferðalag er fyrirhugað.  Ég er hvorki að tala um parketlista né loftlista, hahahahaha, heldur þá sem innihalda langa skrá yfir ýmis nauðsynleg atriði sem ekki má gleyma.  Núþegar hef ég útbúið nokkra s.s. einn yfir þau gögn sem mér sýnist að ég taki með mér úr vinnunni og ég get notað sem „hækju“ á námskeiðinu, efni sem til er á íslensku yfir það sem námskeiðið spannar.  Annar er yfir farangur sem ég er að spá í að taka með mér en hann á eftir að breytast mikið fram á síðasta dag, mikið um útstrikanir og viðbætur.  (Engir auðir eða ógildir).  Svo er það listinn yfir heimilsföng og símanúmer vina og kunningja sem eru á svæðinu, hann má ekki gleymast.  Einn listi er alveg óhannaður en hann á að innihalda þá staði sem ég þarf nauðsynlega að skoða þegar ég verð komin til Washington.  Þar kemur ýmislegt til greina. Að síðustu má ekki gleyma listunum sem ég fékk frá námskeiðshöldurunum annar yfir dagskrána, hinn yfir lesefnið.

 listarEin vinkona mín gerir lista á hverjum degi yfir það, sem hún þarf að koma í verk þann daginn.  Það sem mér finnst sniðugt við listann hennar er að hún skrifar efst á hann nokkur verk sem hún hefur þegar lokið og strikar jafnóðum yfir þau, því þá finnst henni hún hafa afkastað meiru en raun ber vitni.  Sniðugt hjá henni.  Engin nöfn verða nefnd en hún þekkir sjálfa sig, ef hún les þetta

Traustur vinur getur gert kraftaverk, tralalalala

símiÞað sannast alltaf betur og betur fyrir mér að það er gott að eiga góða að.  Ég bjallaði í Gullu frænku (borið fram með smell-hljóði e.o. málmurinn gull) áðan en hún er önnur þeirra sem býr rétt fyrir utan Washington.  Það var sannarlega gaman að tala við hana.  Hún ætlar að kenna mér á neðanjarðarlestakerfið í höfuðborginni sem er mjög gott kerfi að hennar sögn.  Auk þess benti hún mér á ýmislegt sem getur komið sér vel t.d. það að nú er kalt í borginni og að rakinn veldur því að það virðist ennþá kaldara en hitamælirinn sýnir.  Best að taka með sér góða peysu og hlýja yfirhöfn.   Hún var ekki lengi að átta sig á, hvar ég mun búa og gat staðfest að sá staður væri mjög miðsvæðis.  Við ákváðum að ég myndi hringja í hana, á sunnudegi eftir hálfan mánuð.  Hugsa sér; ég verð í Washington eftir hálfan mánuð!

 

hlaðborðAnnað símtal og ekki verra var rétt eftir hádegið í dag, þegar ég sló á þráðinn til Fríðu mágkonu til að tékka á Geira Danmerkurfara.  Það skipti engum togum að hún bauð mér í mat; kjöt í karrý og ég rauk af stað með hálfblautt hárið (nýstigin upp úr freyðibaðinu) enda átti ég eftir að keyra til Keflavíkur.  Ýmsir fjölskyldumeðlimir voru samankomnir til að gæða sér á kræsingunum; Fríða og Nonni, Aðalgeir, mamma og ég.  Aðalgeir dreif sig í pönnukökur til vinar síns, varla búinn að kyngja síðasta kjötbitanum.  Ég held að hann hafi misst af ísnum sem var í eftirrétt.  Fljótlega eftir hádegið mættu þeir feðgar Ingimundur og Aðalgeir yngri.  Ekki spillti það gleðinni þegar þau birtust örlitlu seinna: Minný, Sigvaldi og Þorkell.    Það var ekki komið að tómum kofanum hjá Hólmfríði frekar en fyrri daginn; hún dró fram heimabakaðar gerbollur og þessa fínu súkkulaðitertu með kaffinu. 

grafaAðalgeir yngri, 2 ½ árs var mjög upptekinn af því að leika sér að skurðgröfu og vörubíl og lýsti því fyrir okkur hvernig snjórinn á eldhúsgólfinu hjá ömmu hans var grafinn upp og skellt á vörubílspallinn.  Ýmislegt fleira bar fyrir augu hans, sem þurfti að skýra fyrir okkur fullorðna fólkinu enda sáum við lítið sem ekkert af því sem bar fyrir augu hans.  Gaman að lifa sig inn í ímyndanir barnanna, alltaf fullt að gerast þar.

 

Gurrí mín, ég er sko ekki búin að gleyma þér, það er svo sannarlega gott að eiga þig að líka. Grin

 

Morgunstemming

tesopinnKomin inn eftir góðan göngutúr.  Svei mér ef það er ekki allra meina bót að drífa sig í útigallann, skella á sig góðum skóm og vaða út.  Þramma þetta stefnulaust með sína þungu þanka.  Áður en langt um líður er brúnin farin að léttast, sólin að hækka á lofti, skín á húsgaflana sem snúa í suðaustur, hitinn við frostmark, allt eitthvað svo ferskt.  Göngugarpurinn réttir úr sér við að dást að umhverfinu, fáir á ferli, þó er einn og einn útivið í sama tilgangi og undirrituð.  Gott að setjast við tjörnina og kíkja á endur og gæsir, nokkrir svanir eru þarna líka.  Hópurinn syndir í átt til mín og heldur að ég láti brauðbita af hendi rakna en ég býð ekki upp á neitt, tók ekkert með mér.

 

freyðibaðEftir rúmlega klukkutíma útiveru er ég komin inn, með rjúkandi tebolla við höndina,  freyðibaðið alveg að verða tilbúið og Creadence Clearwater Survival á fóninum.

 

Gleðilegan sunnudag öllsömul.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband