Menningin

teremMenningarklúbburinn gerði sér lítið fyrir í gær og fór í Salinn í Kópavogi til að hlusta á Terem-kvartettinn og Diddú.  Það var sko tíma vel verið.  Til útskýringar vitna ég hér í kynningu á kvartettinum sem ég fann á heimasíðu Salarins.  „Á efnisskrá kvartettsins er á þriðja hundrað tónverka, allt frá umskrifunum fyrir breytta hljóðfæraskipan til þversagnakenndra fantasía sem byggðar eru á þekktum stefjum eftir Bach, Mozart, Rossini, Bizet, Piazzolla, Rota, Rimsky-Korsakoff, Tchaikovsky og fleiri. En þótt hópurinn viði að sér tónlist úr ýmsum áttum breytist hún í meðhöndlun þeirra og talar til manns tærri, rússneskri röddu. Með þessum hætti verða þeir sem Terem-kvartettinn skipa meira en aðeins tónlistarmenn. Þeir færa fólki gleði, ást og eftirvæntingu um þau meistaraverk sem í vændum eru.“  Tónleikarnir verða endurteknir í kvöld og ef það er enn hægt að fá miða, þá mæli ég með því að þú lesandi góður krækir þér í einn.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þarna hefði ég viljað vera. Tærri rússneskri röddu. Veit ekki af hverju en rússland höfðar svo til mín. Ætli rás 1 spili ekki upptökur eða eitthvað???

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.2.2007 kl. 16:16

2 Smámynd: Guðrún Eggertsdóttir

Kannski RÚV taki upp tónleikana í kvöld, - ég veit það ekki.  Það voru hins vegar engin upptökutæki sjáanleg frá þeirri ágætu stofnun í gærkvöldi.  Ég veit, að kvartettinn hefur gefið út CD...........

Guðrún Eggertsdóttir, 16.2.2007 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband