22.3.2007 | 02:01
Samgenetískir kvenhormónar?
Fullt af kvenlegum og samgenetískum hormónum flæddu upp um alla veggi í kvöld. Þannig var nefnilega mál með vexti að við frænkurnar Gulla, Olga Dís og Sigrún Olgu-Dísardóttir höfðum mælt okkur mót í Pentagon City eftir vinnu hjá mér. Ég varð samferða allraþjóðakvikindahópnum í neðanjarðarlestinni (bláu línunni) og sá ekki meira af þeim, eftir að ég var komin inn í Mall-ið, því ég heyrði kallað nafnið mitt eiginlega um leið og ég var komin inn. Það skipti engum togum að við frænkurnar féllumst þarna í faðma og þegar fagnaðarlátunum lauk loks, var ákveðið að yfirgefa svæðið og finna veitingastað á sem skemmstum tíma. Sigrúnu frænku minni, sem ég var að hitta í fyrsta skipti á æfinni, varð á orði: this is the shortest shopping spree Ive ever seen og við hinar vorum sammála en kosturinn var, að við höfðum ekki eytt einu centi í þessu sjoppingspríi. Nema hvað, við fórum sem leið lá til Costco til að ná í gleraugun, sem ég pantaði í síðustu viku. Nú er ég semsagt stoltur eigandi og handhafi að tvennum nýjum gleraugum; öðrum með brúnum umgjörðum, hinum með rauðum og bleikum. Þau síðarnefndu eru Dolce & Gabbana svo ég er ábyggilega alger pæja. Þetta er nú bara pjatt og nokkurskonar skartgripir, því ég þarf í mesta lagi að nota annan hvorn þessara gripa við lestur. Verðið á þessu var eins og verð á einum umgjörðum heima á Fróni. Veitingastaðurinn California Pizza Chicken var áfangastaður okkar frænknanna og þar sátum við í góðu yfirlæti, rifjandi upp gamla tíma og útskýra fjölskyldulífið fyrir Sigrúnu, sem fékk ekki að upplifa það sama og við hinar, þar sem hún hefur búið í Bandaríkjunum frá 5 ára aldri. Mikið hlegið og gantast (og borðað en förum ekki nánar út í það).
Athugasemdir
Minný (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 19:01
Var það eitthvað sem þú vildir segja mér, kæra systir?
Guðrún Eggertsdóttir, 22.3.2007 kl. 21:21
Já, ég sendi þér voða fínan kall. Hann hlýrut að hafa hlaupið í burtu.
Minný (IP-tala skráð) 23.3.2007 kl. 08:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.