7.3.2007 | 22:54
Þetta er á veðurstofu Washington.
Þetta er á veðurstofu Washington, veðurfréttir: hiti klukkan 17:42 er -2°C en feels like -6°C, það hefur snjóað í allan dag en ekki hefur safnast í skafla, þar sem snjórinn bráðnar niður við jörð. Samt virðist allt vera að fara úr skoðum í borginni vegna snjókomunnar. Hitinn var heldur hærri í dag en í gær. Spáð er -13°C á morgun. Félagar mínir halda að ég sé alvön þessu en ég gat sagt þeim að skv. vefsíðu Moggans hafi verið 4°C hiti í Reykjavík um hádegi! Það er ekki vitað, hvort námskeiðahaldi verði frestað á morgun, cmon skóla er aldrei frestað á Íslandi nema það sé næstum fellibylur. Whimps!
Athugasemdir
Nú er klukkan bara 7:45 að morgni og hitastigið -6°C, svo þetta lítur ekki eins illa út eins og í gær. Sjáum til hvernig þetta þróast. Ok, ég veit að hitinn er hærri í Reykjavík, ég sá það á mbl.is að nú séu 3°C þar en hver sagði að allt væri best utan Íslands?
Guðrún Eggertsdóttir, 8.3.2007 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.