17.2.2007 | 16:26
Ferðaáætlun
Nú er ljóst að ferð mín til Washington verður fyrir alvöru. Ég fékk farmiðann í hendur í gær. Jamm. Hann hljóðar upp á flug til Boston, (skipti þar um flugstöðvarbyggingu,) flug til Duelles í Washington, sex vikur líða, þá flug frá Baltimore og heim. Lendi í Keflavík að morgni annars í páskum.
Biðtíminn í Boston er þrír tímar. Það hlýtur að vera nægur tími til að fara í gegnum tollinn, ná í farangurinn, finna flugstöðvarbyggingu C en þaðan er flugið til Duelles-flugvallar í Washington, skrá sig í flugið og fá sér eitthvað í gogginn.
Sem betur fer gengur shuttle bus númer 11 milli bygginga B (þar sem ég lendi) og C á 8 12 mínútna fresti á tímanum frá kl. 4 eftir miðnætti til kl. 1 eftir miðnætti. Stoppistöð er á lower baggage claim í hverri flugstöðvarbyggingu. Ég ætti að ná auðveldlega í svona shuttle bus .
Kannski þessar upplýsingar komi einhverjum lesandanum vel einhverntíma í framtíðinni.
Ekki meira í bili, Edda og Ási eru að hringja á dyrabjöllunni.
Meginflokkur: Ferðalög | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:31 | Facebook
Athugasemdir
Nú, farðu þá til dyra.
Edda (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 19:16
Vá, þau eru með chihuahua-hundinn sinn Loga með sér! Takk fyrir komuna Edda mín. Gaman að fá ykkur í heimsókn.
Guðrún Eggertsdóttir, 17.2.2007 kl. 20:20
Hundurinn heitir Eldur
Minný, amma Elds (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 23:35
Ó, ég biðst afsökunar á afbökuninni.
Guðrún Eggertsdóttir, 18.2.2007 kl. 11:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.