30.1.2007 | 20:58
Prófa að setja inn myndir
Þessi fallegu börn eru skyld mér. Er ég ekki rík? Á fyrri myndinni er Ísabella u.þ.b. 2ja ára að lesa Stúf fyrir Emilíu systur sína sem fylgist með af athygli. Á hinni er Aðalgeir, hann er mikill fjörkálfur eins og frænkur hans og frændur. Ég er semsé afasystir þeirra og tveggja annarra drengja: Andra Más og Sebastian. Það er vegna myndaskorts en ekki kunnáttuleysis að þeir eru ekki sýndir hér ásamt frændsystkinum sínum. Afasystir, það hljómar eins og ég sé 300 ára en þeir sem þekkja mig vita að ég er einungis 15 (í anda).
Myndainnsetningin heppnaðist greinilega vel, þökk sé tækni- og kennslukunnáttu Gurríar galdrakonu. Nú finnst mér ég vera ægilega klár og ekki jafn tæknilega heft og áður.
Athugasemdir
Æðisleg börn. Meira, meira!!!!!!!!!!!!111
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 30.1.2007 kl. 23:56
Æðisleg og yndisleg .........
Guðrún Eggertsdóttir, 31.1.2007 kl. 08:32
Allt að gerast hvar er myndin af mér þetta er nú bara hneykslanlegt heheheheheh
Geiri (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 15:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.