30.5.2023 | 06:55
30.05. Imagine hope
Hópurinn er orðinn svo sjálfstæður að það var um þrjár leiðir að ræða til að komast að Rod Laver Arena í morgun: að ganga alla leið eða val um tvær leiðir með sporvögnum, önnur fól í sér aðeins meira labb en hin.
Yfirskrift fyrirlestrana í dag var: "Imagine hope". Ian Riseley frá Rótarýsjóðnum hóf daginn með því að segja frá áherslum sjóðsins og hvaða verkefni það eru sem sjóðurinn styrkir. Áherslan er á árangurinn af að útrýma lömunarveiki.
Gregory Rockson frá Ghana kom næstur og lýsti því hvernig hann fór úr sárri fátækt yfir í að stofna nýsköpunarfurirtæki í lyfjageiranum, mPharma, til að byggja upp betri heilbrigðisþjónustu í Afríku. Hann setti fram svo fallega setningu "If you can choose to be kind, why choose hatred?"
Emmanuel Katongole frá Úganda lýsti því hvernig hann komst úr ömurlegum aðstæðum, orðinn einn eftir í fjölskyldunni, munaðarlaus og búinn að missa systur sínar þrjár, í að fá háskólagráðu í guðfræði.
Fyrirlestrarnir voru fleiri en allir á svipuðum nótum: hvernig þrautsegja getur komið manni úr ömurlegum kringumstæðum í aðstæður sem dreymt er um.
Chantal Valée lýsti því hvernig henni tókst að koma körfuboltaliði frá því að vera neðst í sinni deild og svo lélegt að enginn vildi spila með því, yfir í að vinna 10 titla í röð. Þessi árangur var byggður upp á 5 árum.
Öllum þessum sögum var ætlað að sýna fram á að Rótarýhreyfingunni muni takast að sigrast á lömunarveikinni. Í dag finnst lömunarveiki aðeins á tveimur stöðum í heiminum: Í Afganistan (3 tilfelli) og Pakistan (1 tilfelli). Þetta er verulegur árangur, því á árinu 1998 greindust 400 tilfelli á dag í Pakistan.
Þegar dagskránni var lokið í Rod Laver Arena ákvað ég að prufa að vera ferðamaður í Melbourne, villast smávegis í sporvögnunum, fara í Bourke Street Mall og nærast á ítölskum veitingastað.
Ferðalög | Breytt 31.5.2023 kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)