29.5.2023 | 10:27
29.05. Sporvagn frekar en rúta
Það var ákveðið að gera ekki sömu mistök í dag og í gær og nota frekar sporvagnakerfið til að komast til Rod Laver Arena en rúturnar sem skipuleggjendurnir bjóða. Það gekk svona ljómandi vel þar til við ætluðum inn í vagn nr. 70. Vagnarnir á þeirri leið voru óvenjustuttir eða aðeins tveir og troðfullir þegar þeir komu á stoppistöðina sem við biðum á. Fleiri gestir ráðstefnunnar höfðu greinilega fengið sömu hugmynd og við: að gera ekki sömu mistök og í gær og sleppa rútuferðum.
Félagarnir ákváðu að ég ætti skilyrðislaust að fara með vagninum og bókstaflega ýttu (tróðu) mér inn í vagninn. Þar var fyrir einn af félögunum sem bókstaflega bjargaði lífi mínu með því að varna því að ég félli útbyrðis.
Í þetta skiptið mættum við með góðum fyrirvara á viðburðinn og þvílíkur viðburður. Yfirskriftin var "Imagine dreams". Fyrirlesararnir voru hver öðrum betri: John Hewko frá Rótarýklúbbi í Kviv, fjallaði um frið, Kari Aima Eik frá Rótarýklúbbi Álasunds fjallaði um umhverfið, Nakeeyat Dramani Sam 10 ára umhverfissinni fór blaðalaust með eigið ljóð og friðarverðlaunahafi Nóbels 2011 Leymah Gbowee fjallaði líka um frið á afar magnaðan hátt.
Gabi Moreno söngkona frá Guatemala fjallaði um gildi þess fyrir sig og frama sinn að hafa fengið tækifæri til að læra að lesa. Hún spilaði nokkur lög á gítar fyrir salinn.
Þessu lauk rétt um kl. 12:00 og ég hafði skráð mig í "Presentential lunch" kl. 13:00 í ráðstefnuhöllinni. Sú ferð hafði tekið 1,5 tíma í gær, svo ég ætlaði að færa mig yfir með sporvagni. Röðin á stoppistöðinni var a.m.k. tveggja tíma löng og góð ráð dýr. Það var enginn í röðinni fyrir ferð í hina áttina, svo ég fór bara eina stoppistöð í ranga átt til að taka vagninn (í rétta átt) þar. Það reyndist rétt ákvörðun því vagninn var tómur þegar hann kom á þá stoppistöð, svo ég fór fram fyrir löngu röðina. Þetta snilldarbragð varð til þess að ég náði á réttum tíma í hádegisverðinn þar sem ég sat með Rótarýfélögum frá S.- Kóreu, Kanada, Filippseyjum, Englandi og Bandaríkjunum. Það sköpuðust fjörugar umræður við borðið um starfsemi klúbbanna ásamt landkynningu og skiptum á barmnælum.
Á allt öðrum nótum: pabbi hefði orðið 102 ára í dag, hefði hann lifað.
Ferðalög | Breytt 31.5.2023 kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2023 | 09:13
28.05. Fólksflutningar og partí
Hvernig á að færa um 14.000 manns milli ráðstefnuhallar og íþróttahallar, sem eru í um 3,8 km akstursfjarlægð hvor frá annarri? Ein leiðin er að setja upp "inter venue" samgöngur með því að láta rútur færa fólk milli staðanna tveggja: bjóða fólki að mæta á annan staðinn, láta það standa í röð sem heyfist eftir því sem rúturnar fyllast, keyra í þungri umferð að morgni hvítasunnudags, að hinum staðnum, afferma rúturnar og gera það sama varðandi bakaleiðina og vona það besta. Í stuttu máli: þessi aðferð gekk ekki vel, hún tók okkar litla hóp 1,5 klst. hvora leið.
Við lögðum af stað frá hótelinu kl. 8:30 í morgun til að vera komin tímanlega fyrir opnunarhátíð ráðstefnunnar sem átti að hefjast kl. 10:00 í Rod Laver Arena. Það tókst ekki og við misstum af opnunarávarpi þeirra mæðgna Maríu Bjarkar Ingvarsdóttur og Ásthildar Ómarsdóttur sem eru gestgjafar á atburðunum sem fara fram í Rod Laver Arena. Það fannst okkur heldur leiðinlegt. Hluti hópsins náði þó að verða nokkrum mínútum á undan okkur hinum og hann gat tekið frá sæti, svo við náðum að sitja öll saman.
Opnunarhátíðin var glæsileg og eins og búast mátti við; ávörp þar til bærra Rótarýfélaga víðsvegar að úr heiminum og þakkir til þeirra sem áttu þær skildar.
Hátíðinni lauk með söng "The Tenors", fjögurra tenóra frá Kanada. Í blálokin fékk Ásthildur gesti til að taka þátt í "HÚ"- i, sbr. heimsmeistarakeppnina í fótbolta. Það vakti mikla kátínu.
"Off venue" atburður hafði verið skipulagður af svæði 19 og 20 (sem eru England og Skotland) en þau buðu svæði 17 og 18 (sem eru Eystrasaltslöndin, Skandinavía og Ísland) í partí á milli kl. 16:00 og 18:00 á Hop bar, Beer Deluxe, Fed Square, Flinders Street. Í stuttu máli sagt: það heppnaðist vel, mikið skrafað, skálað og snarlað. Síðast en ekki síst var Soffia okkar Gísladóttor sæmd Paul Harris orðu.
Til hamingju Soffía með verðskuldaða upphefð.
Ferðalög | Breytt 31.5.2023 kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)